Greinar júlí 2009
26.7.2009
VINARBRAGÐ Sú var tíð, að Litháum fannst, að þeir stæðu einir uppi í heiminum á örlagatímum. Stórveldin sögðu þeim að hafa sig hæga, og hið svokallaða alþjóðasamfélag vildi sem minnst af þeim vita. Þegar þeir leituðu ásjár í raunum sínum, voru fáir til að bænheyra þá.
Lesa meira
24.7.2009
BILDTINGARMAÐUR? Það virðist vera orðið samdóma álit almennings á Íslandi, að íslenskum athafna- og stjórnmálamönnum sé ekki hleypandi út fyrir landsteinana, án þess að þeir verði landi og þjóð til skaða og skammar. Úrásarvíkingarnir rómuðu reyndust, sem kunnugt er, vera fávísir flottræflar. Það sneri allt öfugt; þeir reyndust vera sauðir undir úlfshárum. Og stjórnmálaforystan, sem átti að standa vaktina, gæta hagsmuna almennings og hafa taumhald á dekurdrengjunum – hún svaf á vaktinni og brást þjóð sinni með hörmulegum afleiðingum fyrir samtíð og framtíð.
Lesa meira
20.7.2009
ICELAND: FROM CRISIS TO RECOVERY INTERVIEW WITH MR. JON BALDVIN HANNIBALSSON
BY WITOLD BOGDANSKY IN REYKJAVIK (JUNE 02, 2009).
The purpose of the interview is to present different opinions on present situation in Iceland, collapse of the Icelandic economy in 2008, issues such as membership of EU and EMU, economic situation, adoption of euro (or a different currency), NAFTA issue and others subjects.
Lesa meira
8.7.2009
Svar til Gerðar Pálmadóttur Heil og sæl, Gerður:
Takk fyrir kveðjuna. Fæ ekki betur séð en að við séum sammála. Við verðum að semja, en - þingið þarf að ná samstöðu um að fresta afgreiðslu og reyna að fá nýtt öryggisákvæði (eins konar þak), ef greiðslubyrði reynist verða ofviða gjaldþoli eftir sjö ár. Eins, að verði neyðarlögunum hnekkt fyrir dómstólum (en það er forsenda fyrir því að eignir LB gangi upp í skuldina), þá verði að semja upp á nýtt í ljósi breyttra aðstæðna. Það hafa ýmsir lýst svipuðum hugmyndum. Spurningin er, hvort núverandi stjórnmálaforyta ræður við mál af þessari stærðargráðu.
Það var gaman að heyra frá þér. Með bestu kveðjum, Jón Baldvin
Lesa meira
7.7.2009
UM SMJÖRKLÍPUKENNINGUNA OG SEÐLABANKASTJÓRANN Drottningarviðtal Agnesar við Davíð í Sunnudagsmogga (5. júlí) gefur tilefni til að rifja upp söguna af ömmu Davíðs og kettinum hennar. Í Hvítbók Einars skálds Más er að þessu vikið (sjá bls. 104). Þannig var að kötturinn hennar ömmu vildi stundum ráðast á fugla og veiða mýs og gat verið grimmur og úrillur, en þá greip amma Davíðs til þess ráðs að klína smjöri á rófu hans. Síðan segir:
Lesa meira