Greinasafn

2012
 »janúar

2011
 »desember
 »nóvember
 »október
 »september
 »ágúst
 »júlí
 »júní
 »maí
 »apríl
 »mars
 »febrúar
 »janúar
2010
2009
2008
2007
2006
2005
2004
2003
2002

Articles in English

23.11.2011
ON SOLIDARITY OF SMALL NATIONS

Read more

6.10.2011
WHEN WILL THEY EVER LEARN? The crash 2008 (HRUNIÐ) revisited, three years later.

Read more

20.8.2011
20 YEARS OF ESTONIA´S RESTORED INDEPENDENCE

Read more

3.5.2011
In Search of Freedom: IT´S ALL ABOUT EQUALITY, STUPID!

Read more

13.1.2011
YOU OWE IT TO THEM

Read more

All articles in English

9.1.2012
VÉLARVANA SKIP Í ÓLGUSJÓ, viðtal við JBH úr Reykjavíkurblaði


„Ég get sennilega ekki svarað því í einu orði, von eða vonbrigði,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins og utanríkisráðherra þegar Reykjavík spurði hann að því hvað nýtt ár boðaði þjóðinni. Þegar við setjumst inn í stofu í hlýlegu sveitasetri hans í Mosfellsbæ, á meðan vetrarkuldinn og kafsnjórinn blasa við fyrir utan, útskýrir hann hvers vegna svarið við spurningunni sé ekki einfalt.

Lesa meira 

24.11.2011
AFHJÚPUN - ritdómur um bók Jóns F. Thoroddsen -
ON THIN ICE
– a modern viking saga about corruption, deception and the collapse of a nation. Brúðuleikur, 2011

Ef þú nennir ekki – eða hefur ekki tíma til – að lesa 2000 bls. Í 9 bindum RANNSÓKNARNEFNDAR ALÞINGIS til að skilja, hvers vegna Ísland hrundi, eins og hendi væri veifað úr fjórða sæti ríkustu þjóða heims niður í stöðu langlegusjúklings í gjörgæslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF), þjakað af skuldum, atvinnuleysi og landflótta – þá er þetta tilvalin bók handa þér.

Lesa meira 

23.11.2011
ON SOLIDARITY OF SMALL NATIONS
Aths: Ísland greiddi atkvæði með - en Litháen gegn - aðild Palestínu að UNESCO hjá Sameinuðu þjoðunum. Af þessu tilefni hafði Ramunas Bogdanas, fyrrverandi aðstoðarmaður Landsbergis, sjálfstæðishetju Litháa, viðtal við JBH með vísan til þess, að JBH hafði frumkvæði að stuðningi alþjóðasamfélagsins við sjálfstæðisbaráttu Litháa þrátt fyrir andstöðu bæði Bandaríkjanna og Þýskalands á þeim tíma. Hvers vegna styðja Litháar þá ekki sjálfstæðisbaráttu Palestínumanna með vísan til eigin reynslu?
Viðtalið birtist á útbreiddum vefmiðli í Litháen og fékk mikla umfjöllun. Það leiddi m.a. til þess, að utanríkismálanefnd Seimas (þjóðþings Litháa) efndi til opins málþings um málið. Viðtalið fer hér á eftir óbreytt.

Lesa meira 

4.11.2011
FRÆGÐIN AÐ UTAN
Hvað getur umheimurinn lært af fordæmi Íslands um það, hvernig á að vinna sig út úr kreppu, án þess að slíta í sundur samfélagsvefinn?

Þetta var „ milljóndollaraspurningin“, sem heimsfrægir hagfræðingar voru fengnir til að svara í Hörpunni (var hún ekki annars byggð fyrir Icesave-þýfið mestan part?) um daginn í kveðjuhófi IMF (AGS). Það vakti athygli mína, að hver og einn hinna heimsfrægu fann það helst til eftirbreytni, sem féll eins og flís við rass inn í fyrirfram mótaða mynd þeirra sjálfra um það, hvað bæri að gera og hvað ætti að forðast.

Lesa meira 

26.10.2011
AF SÖGUFÖLSUNARFÉLAGINU
Mottó:
„...að verma sitt hræ við annarra eld
og eigna sér bráð sem af hinum var felld
var grikkur að raumanna geði“.
(E. Ben. Fróðárhirðin)

Mér hefur borist til eyrna, (seint og um síðir, þar sem ég er einn þeirra fjölmörgu, sem sjá ekki Moggann), að þann 17. sept. s.l. hafi formaður þingflokks Sjálfstæðismanna, Ragnheiður Elín Árnadóttir, birt greinarkorn í Mbl., þar sem hún eignaði frumkvæðið að stuðningi Íslands við sjálfstæði báráttu Eystrasaltsþjóða fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksins, Þorsteini Pálssyni.

Lesa meira 

22.10.2011
Þegar pólitíkin brást og peningarnir tóku völdin
Hugleiðingar í tilefni af bók Jóhanns Haukssonar: ÞRÆÐIR VALDSINS.

Einkunnarorð:
„Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir,það er ekki neitt. Það er bara tækifærismennska, valdabarátta“
(Styrmir Gunnarsson, fv. ritstjóri Mbl., í skýrslutöku hjá RnA, VIII, bls. 179).

Arnaldur, Yrsa, Ævar Örn og öll hin spinna sínar íslensku glæpasögur í krafti þeirra eigin frjóa ímyndunarafls. Jóhann Hauksson sækir sinn efnivið í hinn hráslalega veruleika íslensks þjóðfélags eftir HRUN. Mér er nær að halda, að af þessu tvennu sé veruleikinn lyginni líkari. Einkunnarorðin, sem höfð eru eftir Morgunblaðsritstjóranum hér að framan (og hann ætti að vita, hvað hann syngur eftir 50 ára þjónustu í innsta hring valdaklíkunnar) virðast staðfesta það. Enda er nú svo komið, að forráðamenn þjóðarinnar þykjast ekki hafa efni á að byggja nægilega mörg fangelsi fyrir alla þá glæpamenn, sem leika lausum hala úti um allt og bíða vistunar.

Lesa meira 

20.10.2011
TILRAUNIN UM íSLAND
Í grein sinni „Rányrkjubú“ (TMM, 3, 2011), þar sem hann leitar skýringa á HRUNINU, setur Stefán Jón Hafstein spurningarmerki aftan við kenninguna um, að íslenska hrunið hafi stafað af tilraun í anda nýfrjálshyggju í aðdraganda hrunsins.

Lesa meira 

15.10.2011
ÍSLENSKA LEIÐIN
Sumir hafa reynt að stæra sig af því, að Íslendingar hafi fundið séríslenska leið út úr hruninu. Þeir hafi einfaldlega neitað í þjóðaratkvæðagreiðslu að greiða skuldir einkabanka – óreiðumanna. Svo höfum við – ólíkt evruþjóðunum – getað gengisfellt okkur út úr vandanum og þar með komið útflutningsgreinum á skrið. Þetta tvennt er sagt skýra það, að við höfum náð betri árangri en aðrar þjóðir í að vinna bug á afleiðingum kreppunar.

Lesa meira 

13.10.2011
Viðtal Jóns Karls Helgasonar við JBH í Ríkisútvarpinu
Jón Karl Helgason ræðir við Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi utanríkisráðherra um aðkomu Íslands að sjálfsæðisbaráttu Eystrasaltsríkjanna á árunum 1988 - 1991. (Frá 2008)
http://ruv.is/sarpurinn/thegar-jarntjaldid-fell/13102011

Lesa meira 

6.10.2011
WHEN WILL THEY EVER LEARN? The crash 2008 (HRUNIÐ) revisited, three years later.
What was Iceland like before HRUN (crash)? What were the main causes of the crisis? Is anyone responsible? A few conspiracy theories. What are the main consequences? Are there any solutions? Are there any lessons to be learnt?

Lesa meira